AkurinnAkurInn er notalegt gistiheimili í gömlu og virðulegu húsi rétt við miðbæ Akureyrar, á fallegum útsýnisstað. Herbergin rúma einn til fimm og hægt er að kaupa morgunverð með gistingunni. Gestir hafa aðgang að eldhúsi nema frá klukkan 07:00-10:30. Setustofan, sem er í fallegum gömlum stíl, hentar vel til notalegra samverustunda fyrir litla hópa og fjölskyldur. Þráðlaus nettenging er í húsinu. Staðsetningin er mjög góð, 200 metrar í miðbæinn, 300 m á Glerártorg og 600 m í sundlaugina. Morgunverður á Akrinum er í boði frá kl. 8 til 10 en einnig er hægt að semja um aðra tíma ef þarf. Morgunverður er ekki innifalin í verði gistingar og þarf að panta hann fyrirfram. Margir veitingastaðir eru í göngufæri og fá gestir Akursins 15% afslátt á veitingahúsunum Greifanum, Strikinu og RUB 23. |

