Akurinn

AkurInn er notalegt gistiheimili í gömlu og virðulegu húsi rétt við miðbæ Akureyrar, á fallegum útsýnisstað. Herbergin rúma einn til fimm og hægt er að kaupa morgunverð með gistingunni. Athugið að gestir hafa aðgang að eldhúsi.En eldhúsið það er lokað samt sem áður milli 07:00 og 10:30. vegna notkunnar eigenda

Setustofan, sem er í fallegum gömlum stíl, hentar vel til notalegra samverustunda fyrir litla hópa og fjölskyldur. Þráðlaus nettenging er í húsinu. Staðsetningin er mjög góð, 200 metrar í miðbæinn, 300 m á Glerártorg og 600 m í sundlaugina.


 

 
 
 
 
AkurInn – Brekkugötu 27a – 600 Akureyri – tel. +354 461 2500 – akurinn@akurinn.is
2009 - vk.is